sees the day ;)
Árgangur '84 frá Húsavík
23.12.2006 23:58:52 / bjarkini

hó hó hó

Jæja..

mig langar bara til þess að óska öllum gleðiðlegra jóla og góðs nýs árs.... og takk fyrir alllt á liðnu ári.

en annars þá er ég bara komin í slatta jólaskap.. búin að kaupa allar gjafir og allt orðið klárt.. var í skötu áðan hjá pabba og anga svona líka yndislega...hehe

Náði að kaupa mér jólakjól í dag.. mjög flottur finnst mér en samt plane .. ég get notað hann við buxur líka.. I like it..

En já svo ætlað'i ég líka alltaf að óska þeim Drífu og Frigga innilega til hamingju með litlu dúlluna sína.. Hún fæddist 13 desember.. pinku lítið fyrir tímann.. einum mánuði en henni heilsast samt vel og er komin heim og svona.. hlakka mikið til að fá að sjá krúttið!

en jæja.. held ég segi þetta bara gott í bili..

hafið það gott og heyrumst.. over and out

kveðja

Ína Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 11:14:22 / bjarkini

jæja! spurning um að vekja þetta blogg upp frá dauðum!

Jæja.. þá eru prófin búinn og loksins hef ég tíma og nennu til að blogga.. það er svo sem ýmislegt sem hefur gengið á.. það var brjálað að gera í skólanum í ritgerðaskilum og prófum en það er nú allt búið núna og gekk vonandi þokkalega.. Á laugardagin var ég líka að sýna á jólasýningunni hjá kramhúsinu upp í borgarleikhúsi.. það var stuð.. og svo var djamm með stelpunum eftir það.. var líka stuð.. en ég var samt orðin allt of þreytt svo ég fór bara heim svona fljótlega.. reyndar var klukkan þá orðin hálf fimm.. en við komum svo seint í bæinn hvort sem er!

síðan er mamma flutt í bæinn.. gaman að vera ´buin að fá hana til sín.. er samt ekki að fatta að hún sé að fara að vera hérna í ár.. finnst eins oghún hafi bara verið að skreppa í stutta heimsókn

en já..ég ætla að fara að jólast í dag.. þrífa íbúðina og svona.. ótrúlega gott að vera í fríi.. og ég verð nú bara að segja að ég hlakka dáldið til jólanna.. ég upplifði þau nefnilega frekar öðruvísi ífyrra þar sem ég var ípraraguay.. þau voru eiginlega frekar leim..

en mig er lengi búið að langa til að setja inn þetta ljóð sem ég sá í ruhi bok5 sem ég hef verið að fara í gegnum.. ég verð aðsegja að mér finnst það ótrúlega gott og segja allt sem segja þarf um það hvernig farið er fyrir mörgum í dag.. Ég held að þó svo að þetta sé nokkuð ýkt þá geta örugglega margar unglings stúlkur fundið eitthvað sem þær eiga sameiginlegt með þessari stúlku.. og jafnvel þó svo viðséum ekki lengur unglingar..er þetta vel umhugsunarvert.. hvaða mynd erum við að gefa börnum ogunglingum og örðum um sjálfa sig.. þetta fékk mig allavega til að hugsa.. og svona hljómar það:

The Wows of a Teenage Girl

I promise to hate myself
To loathe the refection in the mirror
And if I can honestly say I love myself
I promise to find some other flaw that will work to complain about

I vow to never underestimate the power of batting my eyelashes
Or diets consisting of water and bits of bagles
Because every little pound lost
Is a nother boyfriend gained

I promise to cry at night and feel worthless
Because these hormones cause me to limit my successes
I swear that I will never consent to doing anything I feel is morally wrong
unless my friends tell me to

I promise to try my absolute hardest at every thing I do
And so when I stick my finger down my throat
I can assure you everything will come up
And this includes that diet pill I had fro breakfast

That make-up will be of the perfect fashion
"Whatever's trendiest" I aways say
The clothes, I swear, will be three sizes too small
And the pants...
twice as tight

I pledge to never betray a friend
unless she's totally getting on my nerves
And I promise to do one compassionate thing a day
So when that fat girl walks by
I guarantee I won't snicker in replay

I swear to go to bed every night
Wishing and hoping that these superficial ideas will pass
And that I won't have too many enemies tomorrow
When I start another day

I promise to forgive myself when I am older
And realize that this time is just another phase
And I vow to try and help my daugther
understand that she si worth the highest praise.


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 14:05:38 / bjarkini

útlendingar og fjölmenning.

ég ákvað að skrifa eina færslu svona aðeins á alvarlegri nótunum af því að ég er búin að vera að skrifa svo mikið um fjölmenningu og svo er svo mikil umræða núna um þessi mál í fjölmiðlum. Sko.. ég er farin að halda að stjórnmálamenn þessa lands séu fávitar.

Það er verið að tala um það núna að það eigi að takmarka innflutning útlendinga til landsins. Fólki er farið að finnast allt of mikið af útlendingum á íslandi og vilja ekki meira.. fólk hefur áhyggjur af allskonar vandamálum tengdum innflytjendum. ÞAð eru t.d. farin að myndast fátækrahverfi og þess háttar í tengslum við útlendinga.

En kommon.. núna er allt í einu fólk komið með áhyggjur af þvíað of margir útlendingar séu komnir til landsins og það byrtist í ÞVÍLÍKU kynþáttahatri og ömurlegu orðalagi í garð þessa fólks..

Sko í fyrsta lagi þá vissum við alvega að það myndi aukast fjöldi innflytjenda til muna 1. maí síðastliðin þegar landamærin opnuðust fyrir nýu aðildarríkjunm EES.. Við þekkjum hvaða vandamál eru í nágrannalöndunum í sambandi við þessi málefni og nú er svo komið í mörgum af þessum löndum að erfitt er að finna ráð til að sporna gegn þessum vandamálum. En samt gerðu þessir blessuðu stjórnmálamenn okkar ekki nokkurn skapaðan hlut til þess að gera ráðstafanir áður en skaðinn er skeður.. Svo er bara útlendingunum kennt um og sagt að við viljum ekki fleiri útlendinga.. og bara endalaus neikvæðni .. Sko .. við gleymum því studnum að við vorum að biðja um vinnuafl.. við þurftum og þurfum á vinnuaflinu að halda.. og svo erum við bara með skít og leiðindi í garð fólksins sem kemur itl þess að svara kalli sem við gerðum sjálf.. það er ekki eins og þau hafi grátbeðið um að koma til landsins og fá að vinna.. þeim bauðst þetta tækifæri og tók það.

En málið er að stjórmálamennirnir okkar höfðu tækifæri til þess að gera eitthvað í málunum, gera ráðstafanir til þess að útlendingar myndu ekki einangra sig í sama mæli hér á landi og annarstaðar, til þess að hjálpa þeim að falla inn í menninguna í landinu, til þess að aðstoða þau til þess að læra málið, til þess að sporna gegn fordómum ofl. ofl.. en þeir gerðu ekki neitt.. og núna er bara kynþátthatur og meira kynþáttahatur í umræðunni og ég verð bara virkilega reið þegar ég hlusta á það viðhorf sem margir virðast hafa gegn útlendingum.

svo er annað.. ef þetta væru bandaríkjamenn eða kanadamenn eða norðurlandaþjóðir sem væru að koma itl landsins.. hvað myndi fólk þá gera.. ég efast stórlega um að viðhorfið væri það sama í þjóðfélaginu þá.. sem sagt útlendingur og útlendingur er ekki það sama..

Ég spyr  bara.. hverskonar þjófélag er það sem við viljum hafa á íslandi.. fjölbreytileiki skapar bara auðugra þjóðfélag. en til þess að þjóðfélagið geti verið auðugara þarf að taka tillit til hvors annars, setja sig í spor hvors annars og hætta þessu endalausa þjóðarstolti sem stundum er að gera útaf við okkur.

og hana nú. akkuru var ekki gert eitthvað í málunum strax og vitað var hver þróunin myndi verða.. ég  veit, ég veit.. það kostaði peninga.. og.. og...það var mikilvægara að byggja nýja vegi svo við gætum keyrt á öllum skrilljón bílunum okkar og mengað meira og komist hraðar á milli staða og aukið þannig hraðan og peninga-eltingaleikinn í þjóðfélaginu.. Húrra Ísland.. við erum best.. Eða ekki vera of viss um það!

kveðja Ína.. sem er orðin pirruð á umræðunni!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 13:10:40 / bjarkini

úff og ojjj

já.. ég er alveg búin að fá nóg af þessari ritgerðasmíði. Ég er komin aðeins af stað með báðar ritgerðirnar en er einhvernvegin samt stopp með þær báðar í augnablikinu.. vantar svona hugljómun..!!!

En ég held ég þjáist af svefnsýki. Það er ótrúlegt hvað ég get sofið.. ég meina.. ef ég þarf ekki að mæta í skólann.. og píni mig ekki framúr þá get ég bara sofið endalaust.. samt er ekki eins og ég sé að fara eitthvað seint að sofa..

í morgun vaknaði ég til að skutla Sævari í skólann til að fá bílinn.. ætlaði svo að vera dúleg og lesa aðeins en var svo gáfuð að gera það upp í rúmi því mér var svo kalt.. og auðvitað sofnaði ég.. og bara svaf og svaf.. var þvílíkt erfitt að koma mér fram úr... en ég er allavega komin fram úr og búin að f´amér að borða og lesa smá núna og ætla að reyna að halda áfram með þessar leiðinda ritgerðir.. úff úff.. hver vill gera þær fyrir mig???..

en já.. hehe.. ég verð samt að segja að ég va rað sjóða mér egg áðan.. því það er svo lítið til að borða hérna.. fékk mér bara egg og hafragraut.. ekki verið tími til að fara í bónus dáldið lengi.. en já.. það brotnaði í pottinum held ég af skoppi.. og kom svona spurnga í það.. og ég verð að segja að þetta var það mest fríkí egg sem ég hef borðað.. hehehe.. en bragðgott varð það samt!! ;)

allavega.. þangað til síðar.

adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 11:00:37 / bjarkini

Leikskóli framtíðarinnar

Er þetta ekki grín eða... ÉG er að skrifa tvær ritgerðir í skólanum.. önnur er um heimilisofbeldi og gengur bara voða vel.. en hin.... ó nei..

Ég á að skrifa um málefni leikskólanna frá 2005 - 2010.. sem sagt skrifa um framtíðina.. ég er ekki alveg að sjá hvernig við eigum að fá heimildir um þetta mál.. ekki nema einhver eigi tímavél og geti skotið mér til ársins 2010.. :) það væri vel þegið..

og ég er búin að leita á gegni og á netinu og út um allt og finn bara nánast ekki neitt um þetta efni.. veit ekki hvordan i helveded ég á að finna heimildir um þetta.. kannski maður fari bara til völvu eða eitthvað.. hehe

en ég ætla að tala við Kristínu sem er leikskólastjóri á Garðaborg og athuga hvort hún geti eitthvað aðstoðað okkur.. kemur í ljós

og ef einhver annar veit um einhverjar stórkostlegar greinar, skýrslur, bækur eða bara eitthvað sem við getum notað í þessa ritgerð þá endilega látið mig vita.. Ég er virkilega farin að örvænta hérna..!!!

en ég held ég segi þetta samt gott í bili.

heyrumst síðar

kveðja, Palli

Já eða Ína Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 15:59:18 / bjarkini

OLRÆT!

já.. ég er ekki nógu dugleg við þetta. En ég hef reyndar löglega afsökun núna því ég er eiginlega ekkert búin að vera nettengd í dáldin tíma því að það var víst vírus í tölvunni minni og mér var hent út af skólanetinu og netið heima er svo hægt að ég nenni eiginlega aldrei að vera nettengd þar. En annars er bara gott að frétta.. er í skólanum á fullu.. er búin með fyrsta prófið mitt og held það hafi bara gengið svona ágætlega.. vona það allavega.. kemur í ljós.. svo eru ritgerðir og verkefni og svona að skila... En annars þá eigum við sævar 2 ára afmæli á morgun :) við ætlum að reyna að gera eitthvað skemmtilegt í tilefni af því.. Síðasta helgi var líka mögnuð.. ég ákvað að vera heim þó að sævar og fjölskylda færu austur í skýrn.. nennti eiginlega ekki með.. Ég fór frekar í vísindaferð í skólanum og octoberfest á eftir.. Svo fórum við líka í bæinn og ég kom ekki heim fyrr en um fimmleitið takk fyrir.. tólf tíma djamm.. það hef ég nú bara ekki gert það í LANGAN tíma!! en þetta var meka stuð.. dönsuðum eins og meiníakar!!! hehehehe! Við halla tókum því svo rólega daginn eftir og horfðum á mynd saman og kíktum svo aðeins líka til Drífu og Frigga í nýju íbúðina þeirra.. :) allt að verða voða flott.. Hey.. já svo fór ég í nýja Ikea.. við fórum fengum að fara á prufuopnun áður en þetta opnaði formlega.. ´því sævar var að vinna þarna daginn áður.. þannig að við skelltum okkur og ég ætlaði nú ekki að kaupa mér neitt en endaði svo með því að kaupa mér alveg fullt og þar á meðal nýtt eldhúsborð.. þannig að nú er ekki bara komin nýr ískápur heldur líka nýtt eldhúsborð.. rosa flott.. get meira að segja fariða bjóða fólki í mat! :) ekki mjög mörgum..en kannski svona tveimur..! ;) jæja .. segi þetta gott í bili.. ég skal reyna að vera duglegri að blogga.. ætla að fara að fylgjast með í tíma.. ADIOS! Ína Björg

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 13:21:55 / bjarkini

jæja.. á maður að nenna að skrifa.

Hæhæ... ég er greinilega ekki alveg að standa við það að vera dugleg að skrifa.. það er bara svo ótrúlega mikið annað að gera.. nenni ekki að eiða tímanum í þetta..

en svona report um það sem ég er búin að vera að gera síðan síðast.. '

skólinn er byrjaður á fullu.. verkefnavinna... ritgerðir og FULLT að lesa.. Það gengur alveg ágætlega.. En er alltaf á fullu.

annars fór ég í réttir fyrir austan með Sævari um daginn.. það var massa stuð maður!. ég var rosa dugleg, dró rollur og allt maður og hjálpaði frænda hans að smala fénu heim. Ég var samt ótrúlega þreytt eftir það reyndar sem sínir að ég hef nákvæmlega ekkert þol orðið.. Svo var massa réttarball um kvöldið og vinir hans Sævars komu allir þrír með kærusturnar sínar með sér og komu á ball. Það var stuð og allir skemmtu sér konunglega og dönsuðu langt fram á nótt..

En svo er ég byrjuð í dansi og það er rosa gaman. Er í kramhúsinu.. bara stuð.

Já og svo bestu fréttirnar eru að ég og Sævar vorum að kaupa okkur ískáp. Ég er komin með nýjan ískáp inn í íbúðina mína uppi.. það er þvílíkur munur sko.. yndislegt.. hehe.. svo er hann ýkt flottur.

en ég segi þetta gott í bili..

sé til hvenær ég nenni að skrifa næst

síja

Ína Björg


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 12:50:32 / bjarkini

Risin upp frá dauðum!

Jæja, það er spurning hvort maður fari að byrja á þessu aftur.. tók mér smá svona sumarleyfi frá bloggheimnum, skrifaði hvorki á mína síðu né las annara.. en það breytis kannski núna.. þar sem maður verður á netinu meira eða minna allan daginn í vetur.. hehe

en annars er það helst að frétta að ég er byrjuð í HÍ. fór í uppeldis- og menntunarfræði fyrir þá sem ekki vita. Þetta er nú bara svona rétt að komast af stað en mér líst bara vel á þetta. skemmtilegur hópur og svona.. Svo reynir á þetta þegar hópavinnan byrjar sem byrjar eiginlega í næstu viku.. En ég er tiltölulega lítið í skólanum en það er mikið að lesa.. en sem betur fer er mest af þessu mjög áhugavert. já svo er ég líka í sjálfsnámi í spænsku.. verður spennandi að sjá hvernig mér gengur með það.. ;) Dáldið farin að riðga finnst mér.

En jæja, ætli maður verði ekki að fara að fylgjast dáldið með..er nefnilega í tíma.. verið að fara í gegnum exel.. ótrúlegt hvað ég man samt úr versló

en allavega..

þangað til næst

Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 17:46:52 / bjarkini

a spani'er gott ad.......

.... lyggja i solinni og solbrenna hehehe... ja mer tokst ad brenna all svakalega.. tvi midur.. eg sem aetladi ad vera svo dugleg ad bera a mig en tad misforst allsvakalega.. gleymdi mer adeins, tad var adeins of gaman i sjonum... svo eg brann geggjad mikid og tad er fyrst i dag sem haegt er ad koma vid bakid, eda hendurnar eda axlirnar.. saevar er lika eins og epli a bakinu.. en tetta er allt ad koma.. verdum ordin god fyrir sidasta daginn tegar vid forum i vatnsleikjagardinn..

en i stadin er eg bara buin ad versla alveg helling.. man bara ekki eftir tvi ad hafa verslad svona mikid held eg.. eg a samt ekki mikinn pening eftir svo eg verd ad passa mig.. nu er eg lika haett ad versla sko...

en jaeja ... tetta er svo sodalegur bar sem tettta netcafe er a ad eg er ekki alveg ad meika tetta.. held eg drifi mig upp i ibud .. tad er held eg komin matur..

laet i mer heyra aftur tegar eg er komin heim fra spani..

adios..

ina bjorg


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 14:01:08 / bjarkini

Espana hear I come!

Já, þá er það bara spánn eftir tvo daga.. fer á fimmtudaginn..

það er búið að vera algjört bloggleysi á mér undanfarið en ég hef bara ekki nennt að blogga neitt.. það lesa þetta hvort sem er svo fáir og ekkert merkilegt búið að vera að gerast.

En ég fór reyndar í mjög skemmtilega hestaferð í gær. Mótökustaffinu á Fosshótel í bænum var boðið í hestaferð með Ferðahestum og það var ótrúlega gaman.. hitti loksins fólkið á bak við raddirnar sem ég hef bara talað við. vorum í ferðinni frá sex til tíu.. riðum í 2 tíma.. mjög gaman og ótrúlega fallegt um hverfi.. það er reyndar ekki laust við að það séu svona einhverjar smá harðsperrur farnar að gera vart við sig.. hehe.. en það er bara betra..

heyrðu já, svo fórum við Sævar norður um daginn.. það var stuð.. fórum á Húsavík, gistum eina nótt á hótelinu, skjelltum okkur svo á ball með stuðmönnum á Akureyrrinni í Sjallanum. Hugrún Ósk og kærastinn hennar og vinir hennar úr mývó komu með.. og svo komu mamma og Eneli líka.. þetta var mjög gaman... mesta djamm sem ég hef farið á lengi held ég bara...

en svo er það spánn á fimmtudaginn.. þarf að klára að taka mig til í dag því ég er að vinna í morron... og svo ´förum við út á hádegi á fimmtudag og ég ætla sko að nýta mér það að þurfa ekki að vakna klukkan fimm til að fara til útlanda... :)

svo verður bara sólin sleikt í viku .... : ) jejj... ekki það að ég sé að búast við að verða eitthvað brún því það gerist aldrei.. ennn.. það má alltaf reyna.,..

en jæja..segi þetta gott.. ætla að fara að brjóta saman þvott..

síjú bæ

Ína Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 11:13:53 / bjarkini

Ættarmót

Halló halló!

Það er nú aðeins betra í mér hljóðið í dag en síðast þegar ég skrifaði.. þó svo ég sé reyndar ekki búin að finna út úr þessu með líkamsræktina. En eg fékk frí um helgina og fór á ættarmót!! það var æðislegt maður!... Við lögðum ekki af stað fyrr en mjög seint á föstudaginn og tjölduðum nýja tjaldinu okkar og vindsænginni.. að var voða næs að sofa í tjaldi sko.
Síðan var vaknað snemma á laugardeginum og farið í göngutúr. Við skoðuðum nokkra hella, sáum lunda, borðuðum í helli líka.. svo var farið í sund og horft á leikinn.. Ísland -Svíðþjóð!!! það var æðislegt !!! við tókum yfir Halldórskaffi í Vík og það var þvílík stemming..
Svo var auðvitað kvöldvaka eins og góðu ættarmóti sæmir með skemmtiatriðum og þess háttar.. hrikalega fyndið sumt.. bróðir minn fór t.d. að kostum og söng ósólemíó og litla frænka söng stál og hnífur.. hehehe
En punkturinn yfir i-ið fyrir okkur "ungafólkið" var án efa hestamannaballið sem við fórum á í Tunguseli. En fyrir þá sem ekki vita það þá er Tungusel einmitt í sveitinni hans Sævars.. þar vorum við semsagt umkringd ættingjum mínum og ættingjum hans, mútta mín og mútta hans að dansa saman og þetta var mjög súrrealískt allt saman.. hehehe.. en mjög gaman!!!

svo var bara haldið heim á sunnudaginn.. við kíktum reyndar austur á afa hans sævars og færndur hans og aðeins í bústaðinn.. það var næs að komast aðeins austur..

en núna er það bara vinna vinna og meiri vinna... allavega næstu vikuna.. svo róast þetta aftur í næstu viku..

ég var samt að fatta að ég á bara eina frí helgi eftir þangað til við förum til spánar.. spurning um að fara kannski norður eða eitthvað.. ;)
who knows.
jæja segi þetta gott.. ætla að halda áfram að vinna dáldið .. hehehe
se ya
Ína Björg

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 14:20:11 / bjarkini

OJJJ hvað Ísland er dýrt!!!

Ojjj hvað ég er pirruð núna.!!!!

ÉG er alveg gjörsamlega að klepra af hreyfingarleysi.. er ekki búin að hreyfa á mér rassgatið síðan ég kom heim frá paraguay og ég bara finn vöðvana slakna og fituna myndast.. og ég verð að fara að hreyfa mig.. en það er bara alls ekkert á færi hvers sem er!!

Ég hringdi í fyrsta lagi í Eflingu til að spyrja hvort ég ætti rétt að einhverskonar mótgreiðslu fyrir svona lögðuðu.. og svarið sem e´g fékk er.. nei... þú verður að vera búin að borga samfleitt í tólf mánuði til að eiga rétt að greiðslu.. og ég er búin að borga í þetta prump stéttarfélag síðan 2000 for crying out load en bara af því að ég fór til útlanda í hálft ár og borgaði þá ekki neitt.. þá á ég ekki rétt á prumpi!!! ojj hvað ég er pirruð..

svo frétti ég af dansnámskeiði hjá JSB í sumar.. en það er fjögurra vikna námskeið frir 15000 kr. þrisvar í viku en af því að ég er alltaf að vinna til átta þá myndi ég aldrei ná að mæta alltaf þannig að það er ekki að borga sig.. reyndar fær maður aðgang að tækjasalnum líka en hanne r samt svo lítill að ég er ekki alveg að tíma þessu..

svo ég fór og skoðaði á líkamsræktarstöðvum hvort það væru einhver tilboð í gangi.. ég gat ekki séð að svo væri..
sá svo að baðhúsið er með dansnámskeið en það er löngu byrjað svo ég er of sein fyrir það.. worldclass er að byrja með námseið en það er kennt tvisvar í viku og kostar 11.900 fyrir tólf vikur.. nokkuð gott.. og svo get ég bætt við einvherjum 7000 kalli eða eitthvað og þá fær ég aðgang að tækjasal líka.. ok hljómar ágætlega.... en ég myndi samt alltaf missa eitthvað úr þar sem ég er að vinna til átta þegar ég er að vinna og það yrði þá alltaf annar dagurinn sem ég myndi missa úr.. gæti kannski náð að mæta hálftíma of seint en það er spurning hvort að borgði sig á annað borð..

svo fór ég að athuga með JSB fyrir næsta vetur.. og það er búið að hækka upp 79000 kr árið.. var bara ´rétt um 60000 þegar ég var síðast þar fyrir einu ári.. mér finnst það dáldið dýrt og er ekki alveg að tíma því sko.. en shit hvað ég á samt eftir að vera fúl í vetur ef ég verð ekkert að dansa..

ég satt að segja veit bara ekkert hvað ég á að gera.. mig langar ekki að hætta alveg að dansa og ég verð sko að hreyfa mig svo mikið er víst.. vil púla.. gera púl magaæfingar og svona.. en ég nenni því samt ekki bara í ræktinni..vill gera eitthvað skemmtilegt eins og að dansa.. eða fimleika eða eitthvað..

ohh.. hvað ég þoli ekki hvað ísland er dýrt.. og afhverju er ég ekki í neinu félagi sem býður mér NIÐURGREIÐSLU á þessu helvíti!

afsakið orðbragðið.. en ég er bara mjög pirruð
þannig að ef þið vitið um einhverja töfralausn fyrir mig.. endilega látið mig vita.. ég er allavega farin að finna líkamann slakna hérna!!!!!

kveðja
Eina pirruð!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 14:49:27 / bjarkini

B2

jæja.. þá er ég komin í frí aftur.. ljúft helgarfrí.. dreif mig í klippingu í gær til Laufeyjar og svo í heimsókn til Dódóar sem ég hef ekki kíkt til lengi.. var þar allan daginn. það var voða ljúft.. var líka öll fjölskyldan þar... hehehe...
en svo í dag hef ég lítið gert.. var búin að ákveða að fara í kringluna því að ég ætla að reyna að kaupa mér einhver föt.. á nákvæmlega ekki nein föt.. og vantar líka skó.. en það er enginn sem vill fara með mér í kringluna..er samt að bíða eftir svari frá einni manneskju núna.. ef ekki þá dríf ég mig bara ein..

en ég er búin að hanga á netinu í allan morgun og fór inn á B2.... þar var dáldið merkilegur linkur.. eða þannig sko. það var linkur inn á blog hjá gaur einmitt hérna á blog central sem að postaði blogg um það hvað kvennmenn væru ömurlegir og karlmenn ekki.. allt byggt á goðsögninni um að konur gætu gert margt í einu en karlmenn bara eitt.. ég veit ekki hvers vegna þetta fór svona fyrir brjóstið á greiið drengnum en það er nú meira hvað það olli mikið af viðbrögðum.. mér finnst þetta náttúrulega fyndið.. og það fyndnasta er að þetta eru ekki einu sinni viðbrögð af viti heldur bara eitthvað skítkast og svona.. hehehe.. ég mátti nú bara til að setja inn komment.. legg það alls ekki í vana minn að setja inn komment hjá ókunnugum en ég bara mátti til þar sem sum kommentin voru svo fáránleg. eins og t.d. að forseti bandaríkjana hefði aldrei verið kona og það átti að sanna hvað karlmenn væru merkilegir.. en það er náttúrulega bara staðreynd að bandaríkin eru að fara til fjandans meðal annars vegna þess að núverandi forsetinn er stríðsleikjaóður maður sem hugsar ekki um margt annað.. ég efa að ef það væri kona með völdin í bandaríkjunm að hún væri eins fljót að senda syni sína, mennina og feður í stríð. og það fyndna er hver viðbrögðin við því kommenti voru.. allt í einu var þetta bara brandari.. bara djók.. ekkert meint með þessu.. hehehe.. merkilegt...
þetta er nú meiri vitleysan
en jæja.. ég ætla að fara að reyna að koma mér af stað í kringluna..

heyri í ykkur seinna
kveðja
Ína Björg

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 13:02:48 / bjarkini

Jæja já..

já. það er svo sem ekki mikið að gerast sko.. hehehe...er bara að vinna og svona.. er í fríi í dag.. verð að vinna helgina,..fíla þetta bara mjög vel... gott tækifæri til að æfa tungumálin og svona.. hehe..

þá er bara spurning um að reyna að gera eitthvað í dag eins og að þrífa eða eitthvað þessháttar.. verð að nota frídagana í eitthvað af viti..

annar er mútta búin að vera í bænum.. bara frekar næs.. hehehe e

svo er Sævar byrjaður í sumarskóla og er því í skólanum til 10 næstum öll kvöld svo við sjáumst næstum því aldrei núna.. en það er bara í mánuð... svo verður bara skemmtilegt sumar vonandi.. hehehe

en já það er komin sól núna svo kannski ég skelli mér út.. hmm... veit ekki..

jæja.. bæjó spæjó..

kv Ína Björg


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 23:27:29 / bjarkini

Navision!

Jæja.þá er maður laglega orðin gáfaður... er búin að vera á þriggja daga námskeiði fyrir mótökustarfsmann á Foss hótelum. Nú er ég þraulæfð í því hvernig ég á að díla við erfiðar kringumstæður.. erfiða kúnna... yfirbókanir ofl. ofl... hehehe.. sjáum svo til hvernig það gengur svo þegar maður þarf að fara að bregðast við svona aðstæðum í alvörunni... ekki það að mest af þessu var auðvitað bara common sense...¨!

En svo vorum við líka í fjóra tíma eftir hádegi í þrjá daga að læra á Navision... svo maður geti nú gert eitthvað í vinnunni.. hehe.. ég get nú ekki sagt að námskeiðið hafi verið mjög áhguavert en er þó búin að fá innsýn inn í "töfraheima navision" hehehe.. merkilegt.. hehe
Eitt er þó allavega víst að ég á eftir að kunna miklu meira þegar ég mæti í vinnuna í fyrramálið en ég gerði á síðasta sunnudag.. hehehe...

En það var samt ótrúlega fínt bara áþessu námskeiði.. Það bætti náttúrulega mikið fyrir að hafa Ríkey á námskeiðinu líka.. svo er bara mjög skemmtilegt staff sem er að fara að vinna hjá Fosshótel í sumar.. hitti stelpuna sem verður að vinna á móti mér í sumar.. hún er ótrúlega fín og nú verður auðveldara að skipta við hana í sumar þar sem ég er búin að hitta hana! ;)

En já.. annars er voða lítið merkilegt að gerast þessa dagana held ég.. er að fara að vinna á morgun en svo er líka þriggja daga fríhelgi..og það verður ljúft!!! :) JEJJ!!!!
okilídókilí then.. se you later
over and out
Ina Björg 

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan