Er þetta ekki grín eða... ÉG er að skrifa tvær ritgerðir í
skólanum.. önnur er um heimilisofbeldi og gengur bara voða vel.. en
hin.... ó nei..
Ég á að skrifa um málefni leikskólanna frá 2005 - 2010.. sem
sagt skrifa um framtíðina.. ég er ekki alveg að sjá hvernig við
eigum að fá heimildir um þetta mál.. ekki nema einhver eigi tímavél
og geti skotið mér til ársins 2010..
það væri vel þegið..
og ég er búin að leita á gegni og á netinu og út um allt og finn
bara nánast ekki neitt um þetta efni.. veit ekki hvordan i helveded
ég á að finna heimildir um þetta.. kannski maður fari bara til
völvu eða eitthvað.. hehe
en ég ætla að tala við Kristínu sem er leikskólastjóri á
Garðaborg og athuga hvort hún geti eitthvað aðstoðað okkur.. kemur
í ljós
og ef einhver annar veit um einhverjar stórkostlegar greinar,
skýrslur, bækur eða bara eitthvað sem við getum notað í þessa
ritgerð þá endilega látið mig vita.. Ég er virkilega farin að
örvænta hérna..!!!
en ég held ég segi þetta samt gott í bili.
heyrumst síðar
kveðja, Palli
Já eða Ína Björg